Hafnarfjarðarleikhúsið

Hafnarfjarðarleikhúsið
Strandgötu 50
200 Hafnarfjörður
Miðasala: 555 2222
Miðasala Danstvenna
Miðasala Ódauðlegt verk um stríð og frið

Forsíða

images.jpg 

 

p1010890.jpg

Ódauðlegt verk um stríð og frið

eftir: Steinunni Knútsdóttur

Ódauðlegt verk um stríð og frið reynir að snúa mannlegu eðli á úthverfuna og skoða þær kenndir í manninum sem ýta honum í átök og neita honum um frið í sálinni. Ódauðlegt verk um stríð og frið spyr spurninganna: “höfum við eitthvað lært?”  og “verður manninum bjargað?”.

Verkið er könnunarleiðangur um myrka kima mannlegrar náttúru og  er byggt á sönnum atburðum.

Verkið skoðar hvað það er í mannlegum samskiptum sem leiðir til átaka og ófriðs.Verkið fylgir tveimur börnum frá sakleysi yfir í sekt, frá trausti yfir í ótta, frá kosmosi í kaos. Sagan er sögð á einfaldan og ljóðrænan hátt en um leið af hrópandi vægðarleysi, með skerandi táknum. Verkið dregur fram vilja mannsins til þess að slá eign sinni á fólk, hugmyndir og fyrirbæri, og átök mannsins um yfirráð.

 

Athugið að ekkert kostar inn á sýninguna en hægt er að taka frá miða í síma 555-2222 eða með pósti í netfangið theater@vortex.is

 

Þátttakendur:

Leikstóri: Steinunn Knútsdóttir

Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson

Texti: Hrafnhildur Hagalín,

Söngþjálfi/kórstjóri: Margrét Pálmadóttir


Aðalbjörg Árnadóttir,

Arndís Hrönn Egilsdóttir,

Árni Pétur Guðjónsson,

Hannes Óli Ágústsson,

Hera Eiríksdóttir,

Jórunn Sigurðardóttir,

Kristjana Skúladóttir,

Lára Sveinsdóttir,

Marta Nordal,

Orri Huginn Ágústsson,

Ólöf Ingólfsdóttir,

Sverrir Einarsson,

Sveinn Ólafur Gunnarsson

 

Ráðgjöf: Vytautas Narbutas og Filippía Elíasdóttir